Sund er hluti af íslenskri menningu og er það
nokkuð sem margar konur af erlendum uppruna taka ekki þátt í, því þær kunna
ekki að synda. Með því að bjóða þeim á sundnámskeið, þar sem sundlaugin er
lokuð á meðan, til dæmis eina klukkustund einu sinni eða tvisvar í viku, svo þær geti farið í sund sjálfar og þar
með tekið þátt í sundmenningunni. Það að vera þátttakendur í sundmenningu landsins eykur sjálfstraustið og mun hvetja konurnar, börnin og fjölskylduna alla til að gleðjast saman í vatninu.
Sundnámskeið fyrir konur af erlendum uppruna byrjar á morgun.
sund1-1.jpg
Átak gegn kreppu
föstudagur, 09 apríl 2010
Innflytjendur á Íslandi leggja
ríkan skerf til samfélagsins og við njótum þeirrar sérstöðu að
innflytjendur eru virkir þátttakendur
í atvinnulífi þjóðarinnar og leggja til þess sína skatta og skyldur til
samfélagsins. Það verður að gæta ávinningsins vel og leggja af mörkum
til þess. Til að svo megi verða þurfa stjórnvöld, stofnanir, atvinnulíf,
sveitarfélög, menningarstofnanir og hverskyns
félagasamtök að ekki sé talað um landsmenn og innflytjendur sjálfir, að
taka höndum saman.
Þegar kreppan
skall á, skapaðist mikil þörf fyrir sálfræðistuðning fyrir fólk sem eru í
erfiðileikum. Fólk af erlendum uppruna eru ekki með þann valkost að
fara hvert sem er og hvenær sem er, það þarf að skipuleggja hluti fyrir
þau, sérstaklega að panta túlk til þess að gefa þeim tækifæri til að
tjá sig almennilega.
Jafnréttishús
sótti um verkefni hjá félagsmálaráðuneytinu til undirbúnings
ráðgjafaraðstoðar vegna fjárhagserfiðleika heimila fólks af erlendum
uppruna, og
við erum að athuga hvort þið geti verið samstarfsaðili okkar við að
þjóna þeim sem eru í erfiðileikum.
Verkefnið
snýst um aðstoð á mörgum sviðum, félagsráðgjafa, lögfræðiráðgjafa,
sálfræði- og fjármálaráðgjafa.
Það er um að gera að hafa samband í síma 5340107 eða senda e-mail á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og fá aðstoð.
Tölvunámskeið fyrir konur af erlendum uppruna
fimmtudagur, 08 apríl 2010
Tíu konur af erlendum uppruna voru að ljúka tölvunámskeiði á vegum Jafnréttishúss á Akranesi. Þarna gafst tækifæri fyrir konurnar að hittast og læra ekki aðeins að tileinka sér tölvunotkun heldur einnig íslensku og byrja að
vera hluti af samfélaginu á jákvæðan hátt.
Tölvukunnátta opnar fyrir þátttöku kvennana í tæknisamfélagi okkar, þar sem hægt er að leita sér upplýsinga á netinu, um réttindi og skyldur ásamt öllu sem tölvur bjóða upp á. Það gefur aukið sjálfstraust að taka þátt í samfélaginu.
konurnam.jpg
Íslenskukennslu er að ljúka á Akranesi.
fimmtudagur, 08 apríl 2010
Námskeið í Íslensku 1 og samfélagsfærni
eru þannig uppbyggð að kennd eru undirstöðuatriði íslenskunnar með áherslu á
orðaforða sem notaður er í daglegu lífi. Að auki eru útskýrð ýmis lög og reglur
íslensks samfélags og nemendum leiðbeint um þjónustu- og heilbrigðisstofnanir
og samskipti við þær. Á námskeiðum fyrir atvinnulausa fá nemendur aðstoð við að
búa til ferilskrá, þeim er leiðbeint um hvar hægt sé að finna
atvinnuauglýsingar og þeim kenndur orðaforði sem skiptir máli við að skilja þær
ásamt því að æfa sig í að fara í atvinnuviðtal. Nemendur fá jafnframt þjálfun í
að nýta umhverfið til að bæta við orðaforða og skilning á málinu. Mikil áhersla
er lögð á talað mál í þessu námskeiði og nemendur æfa markvisst að tjá sig.
Sundnámskeið
fimmtudagur, 11 mars 2010
sundnámskeið fyrir konur af erlendum uppruna verður haldinn eftir Páskana
skráning hjá
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
s. 5340107
swimming courses for women of foreign origins, registratrion at
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
s. 5340107
دورات للسباحة للنساء الاجانب للتسجيل يرجى ارسال رسال الكترونية على العنوان المدون اعلاه او الاتصال على الرقم 5340107