|
föstudagur, 29 maí 2009 |
|
 Útskrift á Akranesi
Jafnréttishús hélt sína fyrstu útskrift fyrir nemendur á íslenskunámskeiðum á Akranesi föstudaginn 22. maí 2009. Helga Gunnarsdóttir var fulltrúi bæjarstjórans á Akranesi og afhenti útskriftarnemum viðurkenningarskjöl fyrir þátttöku á námskeiðunum.
Það var fólk frá vinnumálastofnun, bókasafninu og Rauðakross Íslands – Akranes deild viðstatt athöfnina, hún byrjaði með því að Amal Tamimi framkvæmdastýra Jafnréttishúss þakkaði öllum sem áttu þátt í að þessu verkefni gekk vel, verkefnið var á vegum Jafnréttishúss en það var samstarf, vinnumálastofnunar, Rauða krossins og Akraneskaupstaður.
35 nemendur voru að útskrifast á Akranesi, í íslensku og lífsleikninámskeiði fyrir atvinnulausa innflytjendur, flestir pólverjar. Tvær námskeiða lotur hafa verið í gangi frá áramótum samtals 120 tímar. Ásta Björnsdóttir Akranesi var kennari á báðum námskeiðunum. Lögð var áhersla á það að þjálfa nemendur í nauðsynlegum þáttum til að geta bjargað sér dagsdaglega og tekið fullan þátt í samfélaginu.
Jafnréttishús leggur áherslu á að skapa vettvang fyrir samræður milli menningarhópa og meðal þess sem konurnar af erlendum uppruna gera ásamt íslenskum konum á námskeiðunum er að elda saman, fara í gönguferðir í bænum, á listasöfn svo fátt eitt sé nefnt. Þá myndast vettvangur fyrir samræður sem er mikilvægur liður í íslensku og samfélagsfræði.
|
|
|
Bjartir dagar í Hafnarfirði |
|
mánudagur, 18 maí 2009 |
|
Jafnréttishús tekur þátt í Björtum dögum og verður með opið hús þann 28. Maí frá kl. 18:00-22:00. Jafnréttishús hefur það hlutverk að sjá um að öllum í okkar samfélagi líði vel.
Gakktu í bæinn og komdu við í Jafnréttishúsi Strandgötu 25. Það verður Íslensk kjötsúpa á boðstólunum meðan birgðir endast og allir geta fengið nafnspjald með nafninu sínu á arabísku.
Einnig kynning á starfseminni, túlkaþjónustu, íslensku og lífleikni námskeiðum fyrir innflytjendur og ýmis konar ráðgjafaþjónustu og fræðslu.
 (2).jpg) Menningarhátíð Hafnarfjarðarbæjar
|
|
|
Fjölmenningarhátíð í Reykjavík |
|
miðvikudagur, 13 maí 2009 |
|
Fjölmenningardagurinn í Reykjavík 16. maí
Dagskrá í Iðnó Dagskrá í Ráðhúsi/City Hall
Kynnar: Paul Nikolov, Björn Gíslason, Tatjana Latinovic
14:00-14.20 Ávörp: Marta Guðjónsdóttir formaður Mannréttindaráðs Josefina Sverrisson fyrir hönd Heimsgönguhóps Margrét Steinarsdóttir framkvæmdastjóri Alþjóðahúss
14:20-14:40 Kammertónlist frá ýmsum löndum
14:20-14:30 Gija kórinn frá Litháen
14:40-14:55 Söngvar frá Kenía
14:30-14:45 Söngur og dans frá Búlgaríu
14:55-15:15 Japönsk teathöfn 14:45-14:55 Dans snæljónsins frá Tíbet
15:15-15:25 Óperusöngur frá Rússlandi
14:55-15:10 Söngur og dans frá Brasilíu
15:25-15:40 Söngur og dans frá Kúbu
15:10-15:20 Nemendur úr Austurbæjarskóla
15:40-15:45 Söngur frá Sri Lanka
15:20-15:35 Suzuki nemendur
15:45-16:00 Tónlistaratriði frá AFS - nemendum
15:35-15:50 Barnakór
16:00-16:20 Kammertónlist frá ýmsum löndum
15:50-16:05 Salsa frá Perú
16:20-16:30 Dans frá Kenía 16:05-16:15 Dans frá Ghana
16:30-16:40 Söngur frá Írak 16:15-16:30 Dans frá Taílandi
16:40-16:50 Íslenskunemar syngja 16:30-16:50 Bambusdans frá Filippseyjum
16:50-17:00 Fimm vinir frá fimm löndum syngja
16:50-17.00 Gija kórinn frá Litháen
Auk þess: Lifandi bókasafn, sekkjapípur, kynningar og fleira.
Góða skemmtun!
|
|
|
Mikil aðsókn í íslenskupróf |
|
mánudagur, 11 maí 2009 |
|
Mikil aðsókn í íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt
Alls hafa 118 útlendingar skráð sig í íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt sem haldin verða af Námsmatsstofnun frá 8.-12. júní næstkomandi. Enn er opið fyrir skráningu en henni lýkur 14. maí nk. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma geta tekið próf næst þegar þau verða haldin, væntanlega í nóvember/desember á þessu ári.
Prófin miðast við lokamarkmið í grunnnámi í íslensku fyrir útlendinga (240 stundir), samkvæmt námskrá menntamálaráðuneytisins. Prófið er bæði skriflegt og munnlegt og skal reynt á tal, hlustunarskilning, ritun og lesskilning. Ekki verður gefin einkunn, heldur aðeins tilkynnt hvort próftaki hafi staðist lágmarkskröfur.
Skráning fer fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is, og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um prófin, s.s. sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma stofnunarinnar 550 2400. Prófin verða haldin í Menntaskólanum í Kópavogi, Digranesvegi 51. Þátttökugjald er 7000 krónur og þarf það að greiðast tveimur vikum fyrir prófdag.
|
|
|
föstudagur, 24 apríl 2009 |
|
Saumaklúbbur Rauða krossins í Hafnarfirði, Strandgötu 24, verður með matarklúbb fimmtudaginn 7. maí kl. 20:00.
Auglýst er eftir konum sem vilja bjóða sig fram og koma með spennandi rétti, allir leggja fram smáupphæð ca. 300 kr. til að hafa fyrir hráefniskostnaði.
Skráning:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
og sími 861 3818 Áshildur Linnet.
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 46 - 50 af 95 |