|
Eiga rétt á kennslu á eigin tungu |
|
þriðjudagur, 18 ágúst 2009 |
ALLIR sem búið hafa á Íslandi í færri en tvö til þrjú ár þurfa sérúrræði en því miður bjóða ekki allir skólar upp á þau. Það er mjög mikilvægt að í skóla sé þverskurðurinn af þjóðfélaginu því meginmarkmið framhaldsskóla er að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi,« segir Gísli Ragnarsson, skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla.
Framhaldsskólanemendur sem hafa annað tungumál að móðurmáli en íslensku eða hafa búið lengi erlendis eiga rétt á kennslu í íslensku sem öðru tungumáli samkvæmt nýjum lögum um framhaldsskóla.
Einstaklingsmiðuð áætlun
Ný reglugerð um þessi réttindi nemenda er nú komin út og þar kemur fram að framhaldsskólar skuli bjóða upp á sérstakt nám í íslensku sem annað tungumál. Sérstök móttökuáætlun verði gerð aðgengileg fyrir alla þá nemendur sem hafi annað móðurmál en íslensku. Þar verði tekið mið af bakgrunni þeirra, tungumálafærni, færni á öðrum námssviðum og af þeirri kennslu og stuðningi sem veitt er í skólanum.
Í Fjölbrautaskólanum við Ármúla er hæst hlutfall nemenda með annað móðurmál en íslensku af framhaldsskólum landsins og þar er starfrækt sérstök innflytjendadeild. »Nemendur með annað móðurmál en íslensku voru hátt í hundrað talsins á síðustu vorönn,« segir Gísli skólameistari.
Samkvæmt upplýsingum frá menntamálaráðuneytinu er með reglugerðinni verið að formgera það starf sem þegar er unnið víða í framhaldsskólum landsins. Á síðasta skólaári voru nemendur í framhaldsskólum með annað móðurmál en íslensku um 500 talsins og voru Ármúli og Tækniskólinn með stærstu nemendahópana.
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
|
|
|
Virkjun fer af stað á Reykjanesi |
|
fimmtudagur, 06 ágúst 2009 |
Nú styttist í að haust- og vetrarstarf Virkjunar komist á fullan skrið.
Virkjun er nú aftur opin frá 9-16 alla virka daga.
Hópastarf:
Virkjun vill leggja aukna áherslu á hópastarf.
Hópastarf Virkjunar er hugsað þannig að Virkjun skaffar aðstöðuna og sér um að auglýsa starfið, en einn eða fleiri áhugasamir stýra hópnum. Hópastarf getur snúist um hvaðeina sem hugurinn girnist, t.d. gæti það verið ljósmyndahópur, samskipti íslendinga og útlendinga, stangveiðihópur, spilahópur eða hvaðeina sem fólki dettur í hug. Hópurinn hittist þá á þeim tíma sem honum hentar hér í Virkjun til að sinna starfinu. Eina skilyrði Virkjunar (fyrir utan auðvitað að um löglega starfsemi sé að ræða og að stjórn Virkjunar samþykki hana) er að hópurinn sé ávallt opinn fyrir nýja þáttakendur.
Þeir sem hafa áhuga á að stofna og/eða stýra einhverskonar hópastarfi innan Virkjunar er bent á að hafa samband.
Handavinnuhópurinn (sem aðallega er að prjóna) ætlar að byrja aftur eftir sumarfrí þriðjudaginn 11. ágúst kl. 10 og allir áhugasamir eru velkomnir í hópinn. Kaffi er í boði Virkjunar eins og verið hefur.
Hugmyndavinna:
Verkefnið "Hugmyndir vantar fólk" sem var í gangi í vetur hefur fengið nýtt nafn, "Hugmyndahúsið - Ásbrú".
Því er ætlað að vinna hugmyndir fólks að viðskiptatækifærum, frá því að vera hugmynd og allt til þess að verða fullmótað viðskiptatækifæri. Hugmyndahúsið hefur fengið til liðs við sig öflugan hóp fagaðila sem mynda stoðkerfi um verkefnið auk þess sem boðið er uppá mikið úrval námskeiða, fyrirlestra og kynninga sem tengist slíkri vinnu.
Hafir þú góða hugmynd, eða vilt vinna með öðrum að þeirra hugmyndum, er Hugmyndahúsið rétti vettvangurinn.
Námskeið, fyrirlestrar og kynningar:
Nú er unnið að því að móta starfsemi vetrarins og setja upp tímaplan. Fjöldi námskeiða, fyrirlestra og kynninga verður í boði. Nánari upplýsingar verða birtar á vefsíðu Virkjunar, virkjun.net, og á Facebooksíðu Virkjunar og Facebook grúppunni Virkjun, þegar dagskráin liggur fyrir. Sjá má á heimasíðunni virkjun.net (vinstra megin á síðunni) hvað var í boði síðasta vetur undir liðnum "Viðburðir".
Við ítrekum að Virkjun er fyrir ALLA sem áhuga hafa. Endilega kynnið ykkur starfsemina. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu Virkjunar. Kaffi á könnunni :o)
VIRKJUN mannauðs á Reykjanesi
Páll Rúnar Pálsson
http://virkjun.net
|
|
|
Íslenskupróf fyrir umsækjendur um ríkisborgararétt: Tólf féllu í júní |
|
föstudagur, 17 júlí 2009 |
|
www.pressan.is
Íslenskupróf var haldið í fyrsta sinn í júní síðastliðnum fyrir þá sem hyggjast eða hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt en alls tóku 206 manns prófið.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið samdi við Námsmatsstofnun um að sjá um framkvæmd prófanna en samkvæmt lögum frá 1. janúar skal íslenskur ríkisborgari hafa staðist próf í íslensku.
Prófin fóru fram í Reykjavík og á Akureyri en þau skal að jafnaði haldin tvisvar á ári. Næsta próf er fyrirhugað í lok þessa árs.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Flóttafólk veitti innblástur í bók |
|
miðvikudagur, 15 júlí 2009 |
|
visir.is
 Sigga Víðis
Hellulagðar götur og torg Damaskus í Sýrlandi hrifu Sigríði Víðis Jónsdóttur blaðamann. Einnig matarmenningin og margt fleira. Hún dvaldi þar í þrjá mánuði í vor eftir heimsókn í flóttamannabúðir í Írak. Skrapp líka þaðan til nágrannalandanna Líbanon og Jórdaníu.
"Í Sýrlandi eru margir áhugaverðir staðir fyrir ferðamenn og sagan er við hvert fótmál. Ég get nefnt æðislegan markað í borginni Aleppo og rómverska hringleikahúsið í Basra," segir Sigríður Víðis og bætir við að í Sýrlandi sé öruggt að dvelja og heimamenn séu almennt gestrisnir og vinalegir.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Atvinnuleysi minnkar hjá innflytjendum |
|
miðvikudagur, 15 júlí 2009 |
|
Visir.is
Erlendum ríkisborgurum sem eru án atvinnu hefur fækkað samfellt þrjá undanfarna mánuði. Greiningadeild Íslandsbanka gerir málið að umfjöllunarefni í Morgunkorni sínu. „Í lok júní voru alls 1.800 erlendir ríkisborgarar án atvinnu samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar og er það töluverð fækkun frá fyrri mánuði þegar 2.000 erlendir ríkisborgarar voru án atvinnu. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildaratvinnuleysi hefur lækkað hratt það sem af er ári," segir í Morgunkorninu.
Þá segir Greiningardeildin að í lok júní hafi erlendir ríkisborgarar verið 11,8% þeirra sem skráðir voru án atvinnu en í byrjun árs hafi erlendir ríkisborgarar verið 16,5% atvinnulausra í landinu. „Miðað við það mat Vinnumálastofnunar að nálægt 9.000 erlendir ríkisborgar séu nú á innlendum vinnumarkaði er atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara hér á landi nú um 20% og hefur verið að dragast saman frá því að það náði hámarki í upphafi árs í kringum 23%. Þetta er gríðarlega mikið atvinnuleysi, sérstaklega þegar haft er í huga að fyrir hrunið, eða í ágúst síðastliðnum, var atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara innan við 2%," segir í Morgunkorninu.
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 36 - 40 af 95 |