Jafnréttishús

Jafnréttishús   kt. 580408-1170 

Strandgötu 25
220 Hafnarfjörður

Sími: 534 0107 

 

Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Heimasíða: www.jafn.is

 

Skrifstofan er opin frá kl. 8:30-15:00

 

Kynningarbæklingur

Information brochure

Broszura informacyjna

Viðburðadagatal
September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3
 
Forsíða
Evrópski tungumáladagurinn
miðvikudagur, 23 september 2009

 

Talaðu við mig
Talaðu við mig

 

Talaðu við við mig

Evrópski tungumáladagurinn á Borgarbókasafni

Laugardagur 26. september kl. 13:00 – 15:30 - (dagskrá til útprentunar pdf 497 kb)
Aðalsafn, Tryggvagötu 15 


 

 

 

Dagskrá:

 

SÖGUSTUND
13:00 – Lourdes Perez Mateos les sögu á spænsku
13:30 - Sólveig Simha segir söguna Pottasinfónían á frönsku og íslensku

14:00
SIGRÍÐUR THORLACÍUS syngur lög á frönsku, sænsku og íslensku við harmonikkuundirleik Hjartar Ingva Jóhannssonar

14:20
SKIPTIBÓKAMARKAÐUR
Markaðurinn er sérstaklega hugsaður fyrir þá sem eru að leita að lesefni á erlendum málum. Gefðu bækur sem þú ert búin(n) að lesa – fáðu bækur sem þú átt eftir að lesa. Sigríður Thorlacíus opnar markaðinn.  

14:30 – 15:30
TALAÐU VIÐ MIG!
- langar þig að rifja upp tungumálakunnáttu þína?
- hefurðu áhuga á að fræðast um framandi tungumál og menningu?
- viltu nota tækifærið og hitta fólk sem talar þitt móðurmál?

Þú getur spjallað við fólk sem talar:
afrikaan, dönsku, frönsku, spænsku, rússnesku, kreól, portúgölsku, ítölsku, albönsku, pólsku, þýsku og tagalog.

Einnig verða Alliance française og málaskólinn Lingva með kynningar á sinni starfsemi.

Evrópski tungumáladagurinn á netinu (á ensku)

 
Fjölskyldumorgnar
mánudagur, 21 september 2009

 

Borgarbókasafn Reykjavíkur, í samstarfi við Menningarmiðstöðina í Gerðubergi og Leikskólasvið, býður upp á fjölskyldumorgna þar sem fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið að koma og eiga saman góða samverustund á bókasafninu. Boðið er upp á óformlega dagskrá um ýmis málefni. Leikföng og bækur fyrir börnin eru á staðnum og boðið verður upp á kaffisopa.

 

Fjölskyldumorgnar
Fjölskyldumorgnar
 



Um er að ræða tilraunaverkefni en nánari dagskrá verður mótuð í samstarfi við þátttakendur með þarfir þeirra og óskir að leiðarljósi. Allir eru velkomnir og þátttaka er ókeypis.

 

 

 

 

 

 

 

Tími og staður:

Þriðjudaga kl. 10:30-11:30
Borgarbókasafnið í Gerðubergi, Gerðubergi 3-5

Fimmtudaga kl. 10:30-11:30
Aðalsafn, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15
 

 
Íslenskupróf vegna umsóknar um ríkisborgararétt
fimmtudagur, 17 september 2009

 

Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan ríkisborgararétt hefjast hjá Námsmatsstofnun 30. nóvember næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð sig í próf fyrir 10. nóvember. Þeir sem skrá sig eftir þann tíma eiga kost á því að taka próf vorið 2010.

Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins ef næg þátttaka fæst.

Skráning í prófin hefst 15. september nk. og fer hún fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar, www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar upplýsingar í síma 550-2400.

Gjald fyrir þátttöku í prófi er 7.000 krónur.

 

 

Jafnréttishús býður uppá aðstoð við undirbúninginn, Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  

 
Gíneumenn á Íslandi bjóða til veglegrar hátíðar í byrjun október
fimmtudagur, 17 september 2009

Fb. 17.9.2009

 

"Við erum mjög spennt yfir þessu. Þetta verður rosalega gaman og við vonum auðvitað að sem flestir mæti. Allir eru hjartanlega velkomnir," segir Cheick Ahmed Tidiane Bangoura, meðlimur tónlistar- og danshópsins Afrika Lole.  Cheick er meðal skipuleggjanda hátíðar sem haldin verður í sal í Dugguvogi 12 föstudaginn 2. október næstkomandi. "Þetta er í raun fyrsta afríska hátíðin sem er haldin á íslandi," segir Cheick.

 

Á hátíðinni stendur til að bjóða uppá afríska tónlist, dans og matargerð.  Meðal hljómsveita sem staðfest hefur veirð að komi fram eru Big Band Samúels Jóns Samúelssonar, Tropicalia sveit Kristínar Bergsdóttir og Los Heartbreakers, en líklegt er að fleiri nöfn muni bætast í hópinn.  Africa Lole verður í fararbroddi í dansinum og gestum gefst færi á að bragða á léttum afrískum veitingum. 

 
Compass, Ísland 2009
fimmtudagur, 10 september 2009

Sem þátttakandi í Grundtvig verkefni hefur Jafnréttishús haft þá ánægju að taka á móti samstarfshópum frá Finnlandi, Þýskalandi og Belgíu, vegna verkefnisins "Compass mobility project. "  

 

Compass verkefnahópur
Compass verkefnahópur

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gestirnir komu á miðvikudag 2/9 þá hittumst við og borðuðum kvöldverð saman. Á fimmtudag byrjaði vinnan og við skiptum okkur uppí hópa og hópastarfið fór í gang í ráðstefnusal á hótelinu The Viking Village í Hafnarfirði. Vinnan fór fram í litlum umræðuhópum með því að svara spurningum sem vöktu ennþá fleiri spurningar til að ræða um. Umræðuefni varðandi innflytjendur og hvernig hægt sé að hjálpa þeim við að verða virkir þjóðfélagsþegnar að eigin vali (Active citizens by choice).

Á föstudag 4/9 kynnti hver hópur þeirra sýn á þessi málefni. Eftir kynninguna fóru allir í heimsókn í Jafnréttishús, meðan sumir lituðust um á skrifstofunni fengu aðrir leiðsögn í íslensku frá Guðlaugu. Eftir að hafa heimsótt Jafnréttishús var farið í heimsókn til Alþjóðahús þar sem Margrét Steinarsdóttir tók á móti gestunum og kynnti fyrir þeim Alþjóðahús. Og við vorum svo heppin að hafa líka Ingibjörgu Hafstað til að upplýsa gesti okkar um íslenskunámskeið fyrir innflytjendur.

Laugardagurinn byrjaði með því að það fór fram mat á verkefninu, eftir það var gefið frí frá verkefnavinnunni og fyrst var farið í Bláa lónið og seinna um kvöldið var farið út að borða á matsölustaðinn Lime and Basil sem var lokapunkturinn á þesssu frábæra verkefni.  

Það að hitta allt þetta hugmyndaríka fólk hefur aukið þekkingu okkar og hjálpað til við að opna augu okkar fyrir nýjum hlutum. Umræður voru frjóar og við vildum ekki hætta. Sérstaklega þar sem hlutverk Jafnréttishúss er að yfirstíga allar þær hindranir í þjóðfélaginu sem hægt getur á aðlögunarferlinu.  

Þetta verkefni hefur nýst okkur vel þar sem Jafnréttishús er heilmikið í allskonar fræðsluverkefnum sem og ráðgjöf fyrir fullorðna innflytjendur og íslendinga. Aðaláherslan er á námskeið í íslensku sem er um leið nám í samfélagsfærni og fjölmenningu. Hlutverk Jafnréttishúss er að skapa vettvang fyrir umræðum milli mismunandi menningarheima.

Hvatinn að þátttöku Jafnréttishúss í þessu verkefni hér á Íslandi 2.-6. september er að miðla lærdómi, reynslu og góðum vinnubrögðum. Okkar sameiginlega markmið er að finna lausnir varðandi það að ryðja hindrunum úr vegi sem koma í veg fyrir þátttöku innflytjenda í borgaralegum og félagslegum athöfnum.

Við höfum sett upp bloggsíðu: http://compass2009.blogspot.com/  

Velkomið að kíkja á síðuna, þar er að finna framlag frá þátttakendum í verkefninu og ýmsar upplýsingar sem gætu komið að gagni.  

Myndir frá verkefninu eru aðgengilegar á heimasíðu okkar undir myndaalbúm :)

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 26 - 30 af 95

Hello, you either have JavaScript turned off or an old version of Macromedia's Flash Player. Get the latest flash player.

Túlkaþjónusta

Sími 534 0107

 

Meira um túlkaþjónustu 

Tenglar á aðra vefi

Innflytjandi stýrir innflytjendaráði 

 

Your First Steps in Iceland

 

RUV teletext in polish 138 etc.

 

Handbók fyrir innflytjendur 

-Fyrstu skrefin í skólanum 

 

Hafnarfjarðarbær

 

Útvarp innflytjenda 

 

Atvinnu-og þróunarsetur Deiglan

Breiðholt

Grindavíkurbær

Akranesbær

Fjölmenningarsetur

Mannréttindaskrifstofa

Alþjóðahús

Jafnréttisstofa 

Námsflokkar Hafnarfjarðar

Menntaskólinn á Ísafirði

Menntamálaráðuneyti

Félagsmálaráðuneyti

Dómsmálaráðuneyti

Útlendingastofnun

Vinnumálastofnun

Ísland.is

womeniniceland.is

Rauði krossinn

Krakkasíður 

Hvað er í boði fyrir atvinnulausa?

http://www.eures.is  

http://virkjun.net

http://mirra.is