|
Dóms - og mannréttindimálaráðuneytið |
|
fimmtudagur, 08 október 2009 |
|
Próf í íslensku fyrir umsækjendur
um íslenskan ríkisborgararétt
Íslenskupróf vegna umsóknar um íslenskan
ríkisborgararétt hefjast hjá Námsmatsstofnun
30. nóvember næstkomandi fyrir þá sem hafa skráð
sig í próf fyrir 10. nóvember. Þeir sem skrá sig eftir
þann tíma eiga kost á því að taka próf vorið 2010.
Prófin verða haldin í Reykjavík og utan höfuðborgarsvæðisins
ef næg þátttaka fæst.
Skráning í prófin hefst 15. september nk. og fer hún
fram með rafrænum hætti á vef Námsmatsstofnunar,
www.namsmat.is. Þar er einnig að finna nánari
upplýsingar um hvar prófin fara fram, sýnishorn
af verkefnum og prófkröfur. Einnig eru veittar
upplýsingar í síma 550 2400. Gjald fyrir þátttöku í
prófi er 7.000 krónur.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu,
2. september 2009
|
|
|
félagið ísland - Palestína |
|
miðvikudagur, 07 október 2009 |
Fimmtudaginn 15. október n.k. stendur Félagið Ísland-Palestína fyrir
Matur & Menning hátíðinni. Að þessu sinni munu þær Fatin og Aida
frá Akranesi stjórna matseldinni og slegið verður til stórveislu á
matsölustaðnum Kebabhúsinu að Grensásvegi 3. Húsið opnar kl. 19 og
borðhald hefst stuttu síðar. Hafir þú áhuga á að borða ekta
heimalagaðan palestínskan mat og palestínska stemningu þá er þetta
tækifæri sem þú vilt ekki missa af. Síðast komust að færri en vildu og
því um að gera að panta miða í tæka tíð.
Miðaverð er 2000,- kr. og að sjálfsögðu rennur allur ágóði í Neyðarsöfnun félagsins.
Síðasti séns að panta miða miðvikudaginn 14. október. Hægt er að nálgast frekari upplýsinga og miða á Matur & Menning hjá:
Önnu:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða í síma 8482184
Láru:
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
eða síma 8959177
|
|
|
miðvikudagur, 07 október 2009 |
|
Fjölskylduleiðsögn í Hafnarborg
Sunnudaginn
11. október kl. 14 – 16 verður fjölskylduleiðsögn og ratleikur fyrir
fyrir börn og forelda í Hafnarborg. Leiðsögnin og leikurinn er í
tengslum við sýninguna Lífróður – föðurland vort hálft er hafið en þar
getur að líta verk eftir rúmlega þrjátíu íslenska myndlistarmenn sem
endurspegla hafið á ýmsan hátt. Skemmtileg sjótaska hefur verið útbúin
fyrir yngstu sýningargestina en þar geta þau sett upp sjóhatt, gengið
um sýninguna og tengt hluti í töskunni við verkin. Sjótöskurnar eru
einnig notaðar þegar tekið er á móti elstu deildum leikskólana í
safnfræðslunni og yngstu bekkjum grunnskólana.
Sýningunni lýkur 1. nóvember og er opin alla daga frá kl. 11-17 og fimmtudaga kl. 11-21, lokað á þriðjudögum.
Aðgangur ókeypis.
Sýningarstjórar eru Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson.
Sýningin Lífróður nýtur stuðnings Hafnarfjarðarhafnar sem nú
fagnar 100 ára afmæli sínu og minnir um leið á sögu bæjarins sem
útgerðarbæjar.
Nánar um sýninguna, listamennina og dagskránna á heimasíðu safnsins www.hafnarborg.is
|
|
|
miðvikudagur, 30 september 2009 |
|
 Í kópavoginum
Írsk menningarhátið í Kópavogi dagana 2.-11. október 2009
nánar á www.kopavogur.is
"Það verður sannkölluð írsk veisla hjá okkur Kópavogsbúum í október þegar við höldum Írska menningarhátíð. Hátíðin stendur yfir frá 2. til 11. október og verður ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna. Til okkar kemur hinn heimsþekkti RAGÚS hópur sem syngur og dansar að írskum sið, þrjár sýningar verða í Gerðarsafni, fiðlusnillingarnir FIDIL koma fram í Salnum, boðið verður upp á ljóðakvöld, stuttmyndir, fræðslukvöld og margt fleira."
|
|
|
Ertu með eitthvað á prjónunum? |
|
þriðjudagur, 29 september 2009 |
|
Rauði krossinn
Sjálfboðaliðar í Kópavogsdeild Rauða krossins prjóna og sauma ungbarnaföt fyrir börn í neyð. Hópurinn sem kallast Föt sem framlag, mun hittast næst og prjóna í sjálfboðamiðstöðinni Harmaborg 11, 2 hæð, miðvikudaginn 30. september kl. 16-18.
Á staðnum verða prjónar, garn og gott fólk sem hittist reglulega og lætur gott af sér leiða. Velkomið er að taka með sér eigið prjónadót. Þeir sem vilja gefa garn í verkefnið vinsamlega hafið samband. Kaffi á könnunni og með þvi.
Allar nánari upplýsingar í síma 554 6626.
Rauði kross Íslands Kópavogsdeild, sjálfboðamiðstöð Harmraborg 11 sími 554 6626
netfang
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
vefsíða http://www.redcross.is/kopavogur
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
| Niðurstöður 21 - 25 af 95 |