Jafnréttishús

Jafnréttishús   kt. 580408-1170 

Strandgötu 25
220 Hafnarfjörður

Sími: 534 0107 

 

Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

Heimasíða: www.jafn.is

 

Skrifstofan er opin frá kl. 8:30-15:00

 

Kynningarbæklingur

Information brochure

Broszura informacyjna

Viðburðadagatal
September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3
 
Forsíða
Íslenskunámskeið
föstudagur, 05 febrúar 2010
akranes-012.jpg
akranes-012.jpg

Íslenskunámskeið byrja í Febrúar!

 

Íslenska 1

Á námskeiðum Jafnréttishúss er lögð áhersla á talað mál og samfélagsfærni

Strandgata 25, Hafnarfirði

 Upplýsingar í síma: 534 0107 eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

www.jafn.is

 

 

Íslenskupróf fyrir ríkisborgararétt

Þarftu að rifja upp íslenskukunnáttu þína?

Jafnréttishús býður upp á undirbúningskennslu fyrir íslenskupróf.

Sími: 534 0107 eða Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

 

 

Jafnréttishús

Strandgötu 25, 220 Hafnarfirði, S: 534 0107, netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það , heimasíða: www.jafn.is

 

Lesa meira...
 
Rauðakrosshúsið
föstudagur, 15 janúar 2010
Rauðakrosshúsið er opið alla virka daga milli klukkan 12 og 17. Allir velkomnir.

Kæru velunnarar
Næsta vika hefst á fyrirlestri og spjalli um það að eldast þegar Bernharður Guðmundsson kemur á mánudaginn.
Hraðskákmót undir stjórn Róberts Lagerman og tálgunarnámskeið Valdórs verður einnig á mánudaginn og því mikið
um að vera í Rauðakrosshúsinu.
Á þriðjudaginn heldur teikninámskeið áfram og skiptifatamarkaðurinn verður á sínum stað frá kl.16 til 19.
Toshiki Toma fjallar um búddisma í Japan á miðvikudaginn og um að gera að kynna sér þau trúarbrögð og áhrif
þeirra á japanskt samfélag.
Ráðgjöf fyrir innflytjendur, bæði sérsniðin lögfræðiaðstoð og stuðningur verður framvegis í húsinu alla miðvikudaga frá kl.14 til 16.
Á fimmtudaginn er upplagt fyrir þá sem eiga góða hunda að kynna sér hvernig má láta gott af sér leiða og veita öðrum félagsskap
með þeirra aðstoð.
Þá hefur frönskuhópur göngu sína á fimmtudaginn klukkan 12:30, en þar gefst fólki kostur á að æfa sig í að tala frönsku. Nauðsynlegt er að
kunna einhverja frönsku til að taka þátt þar sem þetta er ekki byrjendanámskeið heldur spjall.

Við ljúkum síðan vikunni í Rauðakrosshúsinu á fyrirlestri og umræðum um Noreg og norska kerfið, því þrátt fyrir að margt sé líkt
með Íslandi og Noregi þá er fjölmargt sem er frábrugðið. Umsjón hefur íslensk kona sem hefur verið búsett í Noregi til
fjölda ára og hefur unnið mikið í stjórnsýslunni þar og þekkir kerfið því mjög vel.

Sjálfboðaliðar Rauða krossins veita jafningjaráðgjöf alla virka daga milli klukkan 12 og 17 í Rauðakrosshúsinu og þar má einnig fá
sálfræðiaðstoð og lögfræðiráðgjöf. Prestar og djáknar hafa viðveru alla virka daga frá klukkan 14 til 16 og tilvalið að nýta sér þeirra
þekkingu og reynslu.

Þessi póstur er sendur á póstlista. Ef þú vilt ekki fá svona póst, vinsamlega láttu mig vita.
Prentvæn útgáfa fylgir, vinsamlega prentið dagskrána út og hafið aðgengilega fyrir sem flesta.

 
Rammasamning, nr. 2529
mánudagur, 11 janúar 2010

Túlkaþjónusta er míkilvæg þjónusta. Notkun túlka á að fyrirbyggja misskling milli fólks, túlkarnir eru millimenningarfólk. Þeir túlka það sem aðilum fer á milli, en einnig eru til túlkar sem útskýra menningarmun og eðli þjónustu til innflytjenda, fyrir þeim sem veita þjónustuna og einnig fyrir innflytjendunum sjálfum.

Jafnréttishús er nýstofnað fyrirtæki, stofnað í mai 2008, en starfsmenn þess búa yfir mikilli reynslu og þekkingu, flest þeirra hafa unnið að innflytjendamálum árum saman.

Með bréfi þessu vekjum við athygli á að við erum komin með rammasamning um túlka- og þýðingaþjónustu við Ríkiskaup. Markmið okkar er að þjóna okkar fólki og viðskiptavinum á sem bestan hátt.

Jafnréttishús sér einnig um íslenskukennslu og við erum stolt af að segja frá því að námskeið okkar eru vel sótt, margar stofnanir leita til okkar eftir íslenskukennslu. Við kennum á Akranesi, Reykjanesi og í Hafnarfirði. Á síðasta 1 ½ ári hafa útskrifast hjá okkur um 150 konur og 60 karlmenn.

Við leggjum sérstaka áherslu á málefni innflytjendakvenna. Og við getum sagt að Jafnréttishús er eini staður á Íslandi sem er með það markmíð að sjá um konur af erlendum uppruna, þar sem þær geta komið hvenær sem er og verið með okkur.

Við höfum haldið fyrsta námskeið fyrir okkar túlka. Og Jafnréttishús hefur sótt um verkefni með Leonardo til þess að auka þekkingu túlkanna á öllum sviðum túlkunar og tryggja faglega túlkun. Ætlunin er að hafa sérhæfða túlka yrir heilbrigiðskerfi, félagsþjónustu og í grunn-og leikskólum, sem og  fyrir lögreglu og dómskerfi.

Vð í Jafnréttishúsi óskum eftir góðum samskiptum við ykkur og vonum að við getum uppfyllt allar ykkar væntingar um sem besta þjónustu á þessu sviði.

 

Samkvæmt Rammasmnningu er gert ráð fyrir að aðilar geti gert þjónustusamninga án þess að auglýsa.

 

 

 

 

 

 

 

 
íþróttafélag litháa á Íslandi
miðvikudagur, 06 janúar 2010
þróttafélag Litháa á Íslandi verður stofnað sunnudaginn 10. janúar kl. 16:30, í Jafnréttishúsinu (Strandgötu 25, Hafnarfirði) 2. hæð.Markmið félagsins verður að gefa ungum sem öldnum tækifæri til íþróttaiðkana og félagsstarfa og veita þeim fræðslu um gildi íþrótta og heilbrigðra lífshátta, að stuðla áhuga almennings á íþróttum, aðstoða innflytjendur við aðlögun að íslensku samfélagi með því að stuðla virkum samskiptum milli íslendinga og innflytjenda í íþróttum og bæta ímynd þeirra hérlendis.Félagið er opið fyrir alla.
Nánari upplýsingar gefur Algirdas Slapikas Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
*****************************************************
Šių metų sausio mėn. 10 dieną 16:30, Lygių galimybių plėtros centro - Jafnréttishús - 2. aukšte (Strandgata 25, Hafnarfjörður) vyks Lietuvių sporto klubo Islandijoje steigiamasis susirinkimas.Pagrindiniais sporto klubo tikslais bus tiek jauniems tiek vyresnio amžiaus žmonėms suteikti galimybę sportuoti bei dalyvauti visuomeninėje veikloje,suteikti jiems reikalingą informaciją apie sporto ir sveikos gyvensenos vertę, kelti susidomėjimą sportu imigrantų tarpe, padėti jiems greičiau adaptuotis Islandijoje, skatinant veiksmingus santykius tarp islandų ir imigrantų sporto srityje bei tuo pačiu gerinti imigrantų įvaizdį Islandijoje.Sporto klubas yra atviras visiems.
Detalesnę informaciją sužinosite kreipdamiesi į Algirdą Šlapiką Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
*****************************************************
Lithuanian Sport Club in Iceland will be created on Sunday 10th January. 16:30, in Equality House - Jafnréttishús - (2. floor, Strandgata 25, Hafnarfjörður).Main objektives of the sport club are to give both young and older people opportunity for sports and social activities, providing them with education about the value of sport and healthy lifestyles, to promote public interest in sports, assist immigrants with adaptation to Icelandic society by promoting effective relations between icelanders and immigrants in sports, improve the image of immigrants in Iceland.Sport club is open to everyone.
For more information contact Algirdas Slapikas Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

http://ltis.org/index.php?p=100&lang=1&i=68
ltis.org
Íþróttafélag Litháa á Íslandi verður stofnað sunnudaginn 10. janúar kl. 16:30, í Jafnréttishúsinu ( Strandgötu 25, Hafnarfirði) 2. hæð...nýtt
 
konur af erlenum uppruna !!!!
fimmtudagur, 03 desember 2009
Konur í fjötrum ofbeldismanna
Steinunn STefánsdóttir skrifar
Undanfarin ár hefur erlendum konum sem leita í Kvennaathvarfið fjölgað verulega. Þær voru til dæmis helmingur þeirra kvenna sem í athvarfið leituðu á síðasta ári.

Undanfarin ár hefur erlendum konum sem leita í Kvennaathvarfið fjölgað verulega. Þær voru til dæmis helmingur þeirra kvenna sem í athvarfið leituðu á síðasta ári.

Í gær var kynnt rannsókn sem unnin hefur verið í athvarfinu á aðstæðum þeirra erlendu kvenna sem þangað komu á liðlega hálfu öðru ári frá hausti 2007 og fram á mitt ár 2009. Rannsóknin er unnin af Hildi Guðmundsdóttur mannfræðingi og vaktstýru í Kvennaathvarfinu.

Meirihluti þeirra erlendu kvenna sem í athvarfið leita er frá löndum utan EES-svæðisins en aðstæður þeirra eru mun verri en hinna sem koma frá löndum sem eru í EES. Aðstæðumunurinn felst einkum í því að konurnar frá EES-löndunum fá dvalar- og atvinnuleyfi svo framarlega sem þær hafa vinnu meðan dvalarleyfi kvenna sem koma frá löndum utan EES-svæðisins er tengt maka þeirra fyrstu fjögur árin sem þær eiga hér heima. Þetta þýðir að við sambúðarslit missa þær dvalarleyfi sitt og eiga þá sjaldnast annarra úrkosta völ en að snúa aftur til fyrri heimkynna, oft í aðstæður sem þær áður höfðu kosið að yfirgefa. Þetta þýðir að í mörgum tilvikum fara þessar konur aftur í óbreyttar aðstæður í sambúð við ofbeldismann.

Allar birtingarmyndir kynbundins ofbeldis eru þungbærar þeim sem fyrir því verður. Heimilisofbeldi er ein birtingarmynd þess og er iðulega samspil andlegs og líkamlegs ofbeldis sem gerir það að verkum að konur geta átt í erfiðleikum með að losa sig út úr samböndunum þrátt fyrir að eiga í umhverfi sínu sterkt net fjölskyldu og vina.

Að búa við heimilisofbeldi og ótryggar aðstæður að öðru leyti, svo sem óvissu um framtíð á Íslandi, óvissu um réttindi, tungumálaörðugleika og án fjárhagslegs sjálfstæðis, eins og fram kemur í skýrslunni að getur verið hlutskipti þessara kvenna, er þungbærara en orð fá lýst.

Fram kemur í skýrslunni að um helmingur þeirra kvenna sem koma frá löndum utan EES og leita í Kvennaathvarfið er að flýja aðstæður í sambúð með íslenskum mönnum. Meira að segja er dæmi um að tvær konur af erlendum uppruna hafi leitað í Kvennaathvarfið vegna sama mannsins.

Sumarið 2008 var bætt við ákvæði í útlendingalögum sem á að taka til aðstæðna kvenna í ofbeldissamböndum. Ákvæðið opnar fyrir þann möguleika að erlend kona geti fengið áframhaldandi dvalarleyfi ef sambúð er slitið vegna misnotkunar eða ofbeldis.

Hildur bendir í skýrslu sinni á að erfitt hefur reynst að nýta ákvæðið, meðal annars vegna þess að sönnunarbyrði getur reynst erfið í heimilisofbeldismálum enda er konunum sem fyrir ofbeldinu verða ekki alltaf kunnugt um að þær geti kallað til lögreglu og/eða fengið áverkavottorð.

Hildur Guðmundsdóttir hefur í skýrslu sinni safnað afar mikilvægum upplýsingum um hóp kvenna sem eru lítt sýnilegar í samfélaginu. Þessar upplýsingar verður að nýta til þess bæta úr aðstæðum þeirra.

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>

Niðurstöður 11 - 15 af 95

Hello, you either have JavaScript turned off or an old version of Macromedia's Flash Player. Get the latest flash player.

Túlkaþjónusta

Sími 534 0107

 

Meira um túlkaþjónustu 

Tenglar á aðra vefi

Innflytjandi stýrir innflytjendaráði 

 

Your First Steps in Iceland

 

RUV teletext in polish 138 etc.

 

Handbók fyrir innflytjendur 

-Fyrstu skrefin í skólanum 

 

Hafnarfjarðarbær

 

Útvarp innflytjenda 

 

Atvinnu-og þróunarsetur Deiglan

Breiðholt

Grindavíkurbær

Akranesbær

Fjölmenningarsetur

Mannréttindaskrifstofa

Alþjóðahús

Jafnréttisstofa 

Námsflokkar Hafnarfjarðar

Menntaskólinn á Ísafirði

Menntamálaráðuneyti

Félagsmálaráðuneyti

Dómsmálaráðuneyti

Útlendingastofnun

Vinnumálastofnun

Ísland.is

womeniniceland.is

Rauði krossinn

Krakkasíður 

Hvað er í boði fyrir atvinnulausa?

http://www.eures.is  

http://virkjun.net

http://mirra.is