Lögfræðileg ráðgjöf fyrir innflytjendur í Jafnréttishúsi í Hafnarfirði
Hafnarfirði, þ. 26. ágúst 2010
Jafnréttishús
hefur fengið til liðs við sig lögfræðing til að veita innflytjendum ókeypis
lögfræðilega ráðgjöf. Undanfarin ár hafa innflytjendur geta sótt lögfræðilega
ráðgjöf hjá Alþjóðahúsi. Eftir að starfsemi Alþjóðahúss lauk, sem byggðist m.a.
á þjónustusamningi við stærstu sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins, var almenn
ráðgjöf og lögfræðiráðgjöf fyrir innflytjendur færð til Félagsþjónustu
Miðborgar og Hlíða. Innflytjendur í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur geta því
sótt lögfræðilega ráðgjöf í Jafnréttishúsi.
Ráðgjöf
Jafnréttishúss er hluti af verkefni Félags- og tryggingamálaráðuneytisins er
nefnist Átak til þunglyndis. Jafnréttishús hlaut styrk í tengslum við verkefnið
til að koma á móts við innflytjendur búsetta utan Reykjavíkur. Ráðgjöfin verður
í höndum Helgu Leifsdóttur lögmanns sem hefur viðamikla reynslu og hefur verið
lögmaður á Neyðarmóttöku vegna nauðgana frá árinu 1993, auk þess að reka eigin
stofu.
Helga verður
með viðtalstíma tvisvar á mánuði, þrjár klukkustundir í senn. Þeir sem óska
eftir ráðgjöf hafi samband við Jafnréttishús í símum: 534-0107, 534-0108 eða
534-0109, eða sendi tölvupóst á
Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það
Hlutverk Jafnréttishúss, sem stofnað
var 2008, er að aðstoða innflytjendur við aðlögun að íslensku samfélagi og
stuðla að virkum samskiptum milli íslendinga og innflytjenda. Það er gert með
því að vera með íslensku og lífsleiknikennslu, samfélagsnámskeið og ýmsa
viðburði, einnig ráðgjöf og túlkaþjónustu.
Nánari
upplýsingar veitir: Amal Tamimi, framkvæmdastjóri Jafnréttishúss í síma
899-2301.
ÚTIHÁTIÐ OF FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Á HELLU
mánudagur, 12 júlí 2010
ÚTIHÁTÍÐ OG FJÖLSKYLDUHÁTÍÐ Á HELLU
THAILENSKA – ÍSLENSKA FÉLAGIÐ
HALDA ÚTIHÁTÍÐ VIÐ TJALDSTÆÐI GRUNNSKÓLA HELLUFÖSTUDAGINN 30.JÚLÍ – 1.ÁGÚST 2010
-
- MARKAÐUR
-SÝNINGAR
-ÍÞRÓTTAKEPPNIR
-TÓNLIST OG KAROKEE
VERTU MEÐ OG NJÓTU VESMANNAHELGI MEÐ
OKKUR.
MEIRA
AF UPPLÝSINGUM Á THAILENSKA-ÍSLENSKAFÉLAGIÐ.-SÍMIN 8973611,8673648,6932251
VERIÐ Í GÓÐA SKAPINU!!!!!
.
Reykjavík Safari
fimmtudagur, 08 júlí 2010
Kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar
þriðjudagur, 25 maí 2010
Kynningarbæklingur sendur erlendum ríkisborgurum sem eiga kosningarrétt við sveitarstjórnarkosningarnar
20.5.2010
Alls
eiga 4.575 erlendir ríkisborgarar kosningarrétt við
sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi og hefur dómsmála- og
mannréttindaráðuneytið nú sent þeim öllum kynningarbækling um
kosningarnar. Í bæklingnum er að finna leiðbeiningar á ellefu
tungumálum auk íslensku um kosningarrétt, kjörskrá, framkvæmd
atkvæðagreiðslu og fleira.
Samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna eiga kosningarrétt
danskir, finnskir, norskir og sænskir ríkisborgarar 18 ára og eldri sem
hafa átt lögheimili á Íslandi í þrjú ár samfellt fram á kjördag, og
aðrir erlendir ríkisborgarar 18 ára og eldri sem hafa átt lögheimili
hér á landi samfellt í fimm ár hið minnsta fram á kjördag. Flestir
hinna erlendu ríkisborgara koma frá Póllandi, eða 822, 586 koma frá
Danmörku (þar með taldar Færeyjar og Grænland), 329 frá Þýskalandi, 245
frá Litáen, 232 frá Filippseyjum, 220 frá Bretlandi og 215 frá
Taílandi, svo eitthvað sé nefnt.
Bæklinginn er hægt að nálgast hér á rafrænu formi á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, www.kosning.is.
Morgunverðarfundur með frambjóðendum til borgarstjórnar
miðvikudagur, 21 apríl 2010
Hvað
hyggst þinn flokkur gera í málefnum innflytjenda?
Morgunverðarfundur
með frambjóðendum til borgarstjórnar
Grand Hótel, föstudaginn 30. apríl kl. 8 – 10
Þátttakendur í pallborði:
Kjartan Magnússon fyrir Sjálfstæðisflokk
Oddný Sturludóttir fyrir Samfylkinguna
Sóley Tómasdóttir fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð
Einar Skúlason fyrir Framsóknarflokkinn
Ávarp fyrir hönd Teymis um
málefni innflytjenda: Kristín Vilhjálmsdóttir, Borgarbókasafni
Fundarstjóri: Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri
Mannréttindaskrifstofu Íslands
Dagskrá fundarins
er eftirfarandi:
Fulltrúi teymisins
setur fundinn
Fulltrúar framboða
til borgarstjórnar halda stutt erindi þar sem þeir munu
svara eftirfarandi spurningum:
1.Hvernig ætlar þitt framboð að fylgja eftir
mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar í málefnum innflytjenda?
2.Hvaða
verkefni eru brýnust í því samhengi og hvers vegna?
3.Hvernig
viljið þið sjá þjónustu við innflytjendur og fjölskyldur þeirra í framtíðinni?
Að erindum loknum
verða spurningar úr sal. Notum tækifærið til að koma málefnum innflytjenda á
dagskrá kosninganna í vor!
Teymi um málefni
innflytjenda er samráðsvettvangur stofnana ríkis og sveitarfélaga, fyrirtækja
og frjálsra félagasamtaka sem vinna að málefnum innflytjenda og hafastarfað síðan 1995.